Eftirfarandi er fyrirlestur um Ísrael
Landsvæðið Palestína
-
Það er til landsvæði sem heitir Skandinavía
-
Það er til landsvæði sem heitir Balkanskagi
Það er hins vegar ekki til neitt ríki sem heitir Skandinavíuríki
eða Skandinavíuþjóð
og það er ekki til neitt ríki sem heitir Balkanskagaríki.
Á sama hátt er til landsvæði sem heitir Palestína
Rómverjarnir reyndu strax á fyrstu öldinni að afmá tengsl
Gyðinga við landið, með því að nefna það Sýrland Palestína
(Syria Palestina). Nafnið var dregið af Filisteum, erkifjendum
Ísraels. Þegar ályktað var um stofnun Ísraels, þá var ákveðið að skipta Palestínu upp á milli Gyðinga og Araba.
Gyðingar fengu ca. 30% af Palestínu og 70% fór til Araba,
Palestínu-Araba.
Flóttamannabúðir palestínumanna.
Hvaðan koma flóttamannabúðir Palestínumanna ef þeir fengu 70% af
landi Palestínu?
Þegar Ísraelsríki var stofnað þá hófu Arabalöndin allt um kring,
stríð gegn Ísrael.
Þessar þjóðir hvöttu Palestínu-Araba sem bjuggu innan landamæra
Ísraels að færa sig út fyrir landamærin, svo þeir yrðu ekki
fyrir áætluninni
sem miðaðist að því
„að draga júðana á kjálkunum útí sjó“
Stefnan var að eyða Gyðingunum, eyða nýstofnuðu Ísraelsríki.
Á sama tíma voru 800.000 Gyðingar sem fluttu frá Arabalöndunum
allt um kring, inn fyrir landamæri Ísraels.
Við heyrum aldrei talað um flóttamannabúðir Gyðinga.
Við vitum öll að arabarnir unnu ekki stríðið og hvað gerðist þá?
Bláa svæðið á myndinni er Ísrael. Allt rauða svæðið er
Arabaheimurinn sem vildi ekki taka við bræðrum sínum.
Það eru afkomendur þessara Araba sem verið er að fjalla um þegar
talað er um flóttamenn Palestínu. Og svo sannarlega búa þeir við
ömurleg kjör.
Eina örugga leiðin
til himna er, ef þeir fremja Jihad,
Eina leiðin fyrir konur til himna er, ef þær eru algjörlega
undirgefnar öllum og öllu. Og leiðin þangað fyrir konur er yfir
brú sem er jafnbreið og eitt mannshár.
Múslimar eiga enga von innan sinna trúarbragða.
Við þurfum að biðja
fyrir múslimunum. Þeir eru bræður Gyðinganna. Þeir eru
afkomendur Abrahams. Ísmael og Ísak synir Abrahams voru bræður.
Þegar Guð gerði sáttmála sinn við Abraham þá var Ísmael
umskorinn á sama degi og Abraham.
Við þurfum að biðja fyrir þeim að þeir uppgötvi fyrirheitið sem
þeir eiga í Kristi.
Af hverju að biðja fyrir Ísrael?
Margir spyrja sig... af hverju á ég að biðja fyrir þjóð og
blessa þjóð sem er í stríði ?
-
Guð segir að við eigum að blessa Ísrael
Hér eru ritningastaðir þar sem við sjáum sáttmála Guðs við
Abraham:
1. Mósebók 15:17-18: En er sól var runnin og myrkt var orðið, kom
reykur sem úr ofni og eldslogi, er leið fram á milli þessara
fórnarstykkja. Á þeim degi gjörði DROTTINN sáttmála við Abram og
mælti: ,,Þínu afkvæmi gef ég þetta land, frá Egyptalandsánni til
árinnar miklu, árinnar Efrat:..”
1. Mósebók 17:7-8: ,,Og ég gjöri sáttmála milli mín og þín og
þinna niðja eftir þig, frá einum ættlið til annars, ævinlegan
sáttmála: að vera þinn Guð og þinna niðja eftir þig.
Og ég mun gefa þér og niðjum þínum eftir þig það land,
sem þú nú býr í sem útlendingur, allt Kanaanland til ævinlegrar
eignar, og ég skal vera Guð þeirra.”
Og Guð ítrekar sáttmálann við Ísak, Jakob, Móse og Jósúa
Guð elskar Gyðingana ekkert meira en okkur – en hann elskar þá
örðuvísi,
Gyðingarnir eru þjóð Guðs
Þó svo að við blessum Ísrael og biðjum fyrir Ísrael þá er ekki
þar með sagt að við samþykkjum allt sem þeir gera.
Þetta er alveg eins og með fjölskylduna okkar.
Fjölskyldumeðlimur sem fer og brýtur af sér, okkur þykir vænt um
hann áfram þó svo að við séum ekki sammála gjörðum hans. Það er réttur hverrar þjóðar, að verja sig.
Fyrir þremur árum síðan átti sér stað dramatískur atburður,
þegar Ísrael yfirgaf Gaza eftir 40 ár. Ísrael flutti til
þúsundir íbúa sinna og yfirgaf mörg falleg hverfi og þorp í þeim
gagngera tilgangi að stuðla að friði.
Ísrael, ásamt heimsbyggðinni gerði ráð fyrir að þetta yrði til
þess að íbúar Gaza myndu hætta hernaðarátökum, þegar þeir væru
lausir við það sem þeir töldu vera "grimmt hernám Ísraels".
Stórum fjárupphæðum var safnað af alþjóðasamfélaginu til að
hjálpa þeim við að byggja upp þjóðfélag. Allir vonuðu að þetta
framtak Ísraels myndi loksins gefa frið milli þessara stríðandi
fylkinga.
Ein meginforsenda brotthvarfs Ísrael var að komið yrði í veg
fyrir eldflaugaárásir á landið. Síðan þá hafa Hamas samtökin
haft yfirhöndina á svæðinu og nýtt landsvæðið til stórfelldra
eldflaugaárása. Frá árinu 2005 hefur Hamas skotið yfir 6.300
eldflaugum og sprengjum yfir til Ísrael. Síðastliðið ár var yfir
3.000 eldflaugum og sprengjum skotið á almenna borgara.
Alls hefur yfir 10.000 eldflaugum verið skotið á Ísrael
Nákvæmur listi yfir eldflaugaárásir er birtur við
varnarmálaráðuneytið í Ísrael
Golda Meir sagði eitt sinn: „We
can forgive you for killing our sons. But we will never forgive
you for making us kill yours.“
Það hefur aldrei verið fjallað um það í fjölmiðlum hérna heima,
hversu mörg ísraelsk börn hafa fallið í hryðjuverkaárásum í
Ísrael.
-
Það þykir ekkert fréttnæmt –
Myndir af nokkrum þeirra ísraelsku barna
Þvert á fregnir íslenskra fjölmiðla þá leyfði Ísrael að
hjálpargögn á borð við matvæli, lyf og annað að færi yfir
landamærin til Gaza þó svo að eldflaugum Hamas hafi verið skotið
á sjálf landamærahliðin þar sem Ísraelar hleyptu hjálpargögnum í
gegn.
Til að undirstrika markmið Ísraelsmanna sagði Peter Lerner,
liðsforingi hjá varnarmálaráðuneyti Ísraels, við fjölmiðla þegar
átökin á Gaza geisuðu:
„Eins og forsætisráðherrann sagði í gær, þá erum við ekki í
stríði við Palestínumenn heldur við hryðjuverkamenn Hamas
samtakanna, og erum þar af leiðandi að flytja [til Gaza]
hjálpargögn fyrir Palestínumenn. Við höfum engin takmörk sett á
fjölda vörubíla [með hjálpargögn] en það voru fyrst aðeins 30
vörubílar því það var það sem tilbúið var að hjálpargögnum í
dag.“
Ísrael hefur frá því átökin hófust sent slasaða almenna borgara
yfir til Ísrael svo hægt sé að gera að sárum þeirra og veita
aðra læknisaðstoð.
Margir þeirra palestínumanna sem slösuðust í átökunum reyndu að
komast yfir landamærin til Egyptalands en Hamas samtökin bönnuðu
slíkar ferðir.
Annað dæmi varðandi rangan fréttaflutning er þýtt úr
tölvupósti frá Tomas Sandell stofnanda European Coliation for
Ísrael:
„Átökin á Gaza eru ekki aðeins hernaðarleg átök heldur einnig
fjölmiðlaátök.
Á meðan stríðið stóð sem hæst, sl. mánuð, þá var oft vitnað í
norskan lækni sem var að starfa á Gaza. Eins og fréttaflutningurinn var, þá kom þetta út eins og hann væri fastur á sjúkrahúsi á Gaza, innan um deyjandi konur og börn. Sem er rétt, það voru deyjandi konur og börn meðan árásirnar stóðu sem hæst. Þessi læknir tekur einhliða afstöðu með Hamas hryðjuverkasamtökum og gegn Ísrael. Ef farið er í smá rannsókn á internetinu, ma. Wikipedia, þá kemur í ljós að hann er harðlínumaður, sem hefur unnið fyrir málstað Palestínu allt frá 7 áratugnum.
Löngu áður en þessi átök hófust, hefur hann ásakað Ísrael og
Bandaríkin fyrir glæpi í Mið-Austurlöndum.
Og takið eftir þessu:
Hann varði árásirnar á tvíburaturnana 11. september 2001!!
Þetta er rétt andlit þessa manns, sem á að vera að starfa við
mannúðarstörf!!“
Baráttan er ekki við hold og blóð, heldur við andaverur
illskunnar (Efesusbréfið 6:11-13; 2. Korintubréf 10:3-5)
Í núverandi baráttu á Gaza, er stríðið ekki gegn íbúum Gaza,
heldur anda Jihad, hryðjuverka og gyðingahaturs, sem hefur náð
yfirhöndinni þar.
Vegna þess að þetta stríð er andlegt, þá notar það ekki eingöngu
skriðdreka og eldflaugar, heldur einnig heimsálitið og
fjölmiðla. Ísrael er í mjög sérkennilegri stöðu, þar sem annars vegar er verið að berjast gegn Jihad öfgafullra íslamista innan Hamas og Hisbolla og hins vegar, frjálslyndum húmanistum í fjölmiðlum og innan Sameinuðu þjóðanna. Hermennirnir þurfa mikið hugrekki til að berjast við hryðjuverkamenn, samhliða því að sýna heilindi og þolinmæði við að starfa samkvæmt ströngustu reglum siðferðislegs stríðs.
Sérhvert eldflaugaskot er tekið upp á myndavél frá flugvél eða
þyrlu, til að sanna og staðfesta skotmarkið. Enginn her í allri
mannkynssögunni, hefur tekið upp svona varúðarráðstafanir eins
og Ísraelsher gerir núna í þessu stríði. Ástæðan fyrir því að
svo margir almennir borgarar eru særðir, er vegna þess að það
hefur verið logið að þeim, Hamas hefur logið að þeim, þannig að
fólkið er gert að mannlegum skjöldum. Myndbandsupptökur úr
flugstjórnarklefum Ísraelshers, sýna að Hamas er að skjóta
eldflaugum frá skólum, heimilum og moskum.
Í Daníelsbók, kafla 10, þá fastar spámaðurinn í þrjár vikur.
Dýrðarengill frá Drottni birtist Daníel og gefur honum
opinberun.
Opinberunin var um það sem koma mun yfir Ísraelsþjóðina á
endatímum, fjarlægt þeim tíma sem Daníel lifði. Öll opinberun
varðandi endatímana er tengd Ísrael. Og tengist stríði.
Í þessari sýn, þá segir Himneski Sendiboðinn honum aðstæður
stríðsins. “Þá sagði hann: Veistu, hvers vegna ég er
til þín kominn? En nú verð ég að snúa aftur til þess að berjast
við verndarengil Persíu, og þegar ég fer af stað, sjá, þá kemur
verndarengill Grikklands.” – Daníelsbók 10:20. Í dag þá er
Íran á því landsvæði sem áður hét Persía. Íran er aðal
uppspretta fjármagns til Hamas og Hisbolla.
Engill Drottins barðist gegn þessum tveimur öflum, á sama hátt
og Ísrael er að berjast gegn þeim í dag.
Andleg barátta er líka stríð sannleikans gegn lyginni.
Í Evrópu hefur gyðingahatur verið að aukast gífurlega undanfarin
ár og samhliða því, hefur múslimum verið að fjölga alveg
gífurlega í álfunni
Talið er að fjöldi múslima í löndum Evrópubandalagsins sé á
milli 13 og 20 milljónir. En samtals eru 52 milljónir Múslima í
Evrópu þegar Suðaustur Evrópa, Tyrkland og Rússland eru talin
með.
Á sama tíma og vestrænar konur í Evrópu fæða að meðaltali 1.4
börn Þá fæða múslima
konur í Evrópu að meðaltali 3.5 börn
Árið 2050 er talið að
fjöldi múslima í Evrópu hafi sennilega tvöfaldast.
Rótin að seinni heimstyrjöldinni var Gyðingahatur.
Í dag, er gyðingahatur komið á sama mælikvarða í Evrópu og það
var eftir að Hitler komst til valda.
Nokkrir punktar til viðvörunar um vaxandi gyðingahatur í Evrópu
Í París er bylgja ofbeldis í garð Gyðinga frá því átökin á Gaza
brutust út.
Ráðist hefur verið með eldsprengjum á synagógur í París,
Toulouse og á fleiri stöðum í Frakklandi.
30 slík tilfelli eru skráð frá því í desember síðastliðnum.
Nýlega var ráðist á 14 ára stelpu í skóla og hún kölluð “dirty
Jew” eða skítugur gyðingur. Þetta gerðist í úthverfi Parísar.
Áróður eins og “drepum gyðingana” má sjá á mörgum stöðum.
Það hefur líka verið ráðist á synagógur í öðrum borgum Evrópu,
eins og Brussel, Antwerpen og Charleroi í Belgíu.
Í London og í Svíþjóð hafa verið gerðar tilraunir til að ráðast
á synagógur.
Í löndum eins og Tékklandi, Póllandi, Ungverjalandi, Rúmeníu og
Búlgaríu – löndum sem hafa losnað undan valdi kommúnismans -
Í Tyrklandi er útbreiðsla Gyðingahaturs ógnvekjandi, en þar
hefur forsætisráðherra í ræðum sínum, hvatt til haturs gagnvart
Ísrael og það hefur haft gríðarleg áhrif á almenning.
Það er ekki hægt að telja upp öll atvik Gyðingahatursins í
Tyrklandi hér, þau eru svo mörg en í stærstu synagogu í borginni
Izmir, var skrifað á dyrnar:
“Við munum drepa ykkur.”
Nálægt Háskólanum í Istanbul setti hópur fólks plakat á dyr
verslunar í eigu Gyðings sem á stóð: “Verslið ekki hér, þessi
búð er í eigu Gyðings.”
-
Og sama verknað sjáum við hér á Íslandi, þar sem miðar hafa
verið settir í glugga verslunar þar sem stendur: „Júðar ekki
velkomnir“
Stuðningsmenn Ísrael í hinum ýmsu löndum Evrópu hafa farið í
göngur
- ekki
mótmælagöngur heldur stuðningsgöngur.
Það er víðtækur stuðningur við Ísrael um alla Evrópu. Í London,
Munich, Vín, Berlín, Stokkhólmi og Osló hafa kristnir og
Gyðingar farið í stuðningsgöngur saman
Í Osló var ráðist á gönguna af andstæðingum Ísrael og þar er
talað um versta götuofbeldi sem átt hefur sér stað í 20 ár. Í Stokkhólmi – þurfti ganga sem gengin var til stuðnings Ísraels, að vera undir mikilli lögregluvernd vegna andstæðinga Ísraels sem reyndu á ofbeldisfullan hátt að stöðva gönguna.
Það er ekki hægt að tengja þetta ofbeldi í Stokkhólmi eingöngu
við átökin á Gaza. Undanfarin ár hefur ekki verið hægt að fara í
friðargöngur til minningar um Helförina, öðruvísi en með mikilli
lögregluvernd.
Við þurfum að taka stöðu okkar, vera meðvituð um það sem er að
gerast.
Eitt dæmi um það sem þeir gerðu var fyrir Heimsmeistaramótið í
knattspyrnu árið 2006, en þá fóru samtökin af stað með átak í
fjölmiðlum í Þýskalandi, þegar forseti Írans Mahmoud Ahmadinejad
hafði
boðað
komu sína á leikana.
Auglýsingaátakið var þessi mynd ásamt textanum: Nú í sumar hefur forseti Írans Mahmoud Ahmadinejad boðað komu sína á HM í Þýskalandi. Hann hefur opinberlega sagt að hann vilji „þurrka Ísrael út af kortinu“.
Sumir sjá „ bara leik“
Mamúd afboðaði komu sína.
-
Við getum haft áhrif !!
Sem kristið fólk erum við kölluð til að skipa okkur í skarðið
fyrir Ísrael, til að biðja fyrir og
styðja þjóðina.
•
Guð hefur talað það til okkar
•
Gyðingahatur er að aukast og er nú svipað og við upphaf síðari
heimstyrjaldar
•
Myrkrið er alltaf að aukast og kirkjan verður að boða sannleika
Guðs með djörfung og hugrekki svo ráðsáætlun hans nái fram að
ganga.
Ísrael lætur engan ósnortinn. Landið og þjóðin benda á tilvist
Guðs, áætlanir hans og loforð.
Það skiptir ekki máli hversu fjarlægt Guði, fólk er orðið. Það
er eitthvað við Ísrael sem ekki er hægt að sneiða hjá. Eitthvað
afdráttarlaust og sannfærandi.
Í Rutarbók lesum við;
Þegar hungursneyð ríkti í Ísrael yfirgáfu Gyðingarnir Naomí,
maður hennar og synir, heimaborg sína Betlehem og fluttu til
Móabslands. Þau lentu í útlegð eins og svo margir Gyðingar um
allan heim síðan.
Þau samlöguðust fólkinu, synir Naomí kvæntust móabískum konum.
Synir hennar og maður dóu og hún ákvað að snúa aftur heim. Þegar
hún er að leggja af stað koma tengdadætur hennar til hennar,
Orpa og Rut. Hún gaf þeim kost á að verða eftir. Orpa valdi að
verða eftir en ekki Rut. Rutarbók 1:15-17
Rut ákvað að fylgja Naomí, hún skildi að Naomí átti að fara og
búa í landinu vegna þess að Naomí var Gyðingur. Hún gerði sér
grein fyrir því að Guð Naomí væri lifandi Guð. Rut var móabísk
en ekki af gyðinglegum uppruna og gat því tekið afstöðu,
með eða á móti. Blessað
eða bölvað, veitt stuðning eða verið upptekin af öðru. Hún
valdi blessun og hlaut mikla blessun.
•
Afkomandi Rutar var Davíð konungur, hún öðlaðist þannig sess í
opinberunaráætlun Guðs.
•
En... Rut gat ekki orðið blessun fyrr en hún hafði tekið
ákvörðun. Ákvörðunin var mikil og breytti lífi hennar.
Við stöndum í dag frammi fyrir þessari sömu ákvörðun. Við getum
valið að ganga með Orpu og anda þessa heims, áhrifum hans,
skoðunum og viðhorfum. Sumir velja þá leið, en það þýðir meiri
kulda gagnvart Ísrael, meira gyðingahatur.
Við getum líka valið að segja við Gyðingana:
Mín spurning til þín er…
-
Ertu tilbúin/n að
skipa þér í skarðið?
Resources:
-
Líf mitt – með Goldu Meir
-
Revive Israel
-
Fréttaveitan amx.is
-
European Coalition for Israel
|
||
|